Ný æfingatafla
Við vekjum athygli á því að æfingatafla tekur gildi þriðjudaginn 25. september. Þó byrjar 8. flokkur ekki fyrr en þriðjudaginn 2. október. Nýir iðkendur eru sérstaklega boðnir velkomnir á æfingar. Öllum er frjálst að mæta á æfingar og kanna hvort knattspyrnan sé íþróttagrein við hæfi. Ekkert gjald er tekið fyrir fyrsta mánuðinn ef iðkandi kýs að halda ekki áfram.