Ný æfingatafla yngri flokka
Við vekjum athygli á því að ný æfingatafla yngri flokka er komin út og gildir hún fyrir æfingar yngri flokka í vetur. Taflan tekur gildi mánudaginn 25. september en æfingar 8. flokks hefjast þriðjudaginn 3. október. Nýja iðkendur bjóðum við sérstaklega velkomna á æfingar. Öllum er frjálst að mæta á æfingar og kanna hvort knattspyrna sé íþróttagrein við þeirra hæfi. Ekkert gjald er tekið fyrir fyrsta mánuðinn ef iðkandi kýs að halda ekki áfram.
» Æfingatafla yngri flokka