Nýir leikdagar í Pepsi-deildinni
Eins og áður hefur komið fram var leik Keflavíkur og KR í 13. umferð Pepsi-deildarinnar frestað vegna þátttöku KR í Evrópudeildinni. Nú er búið að finna nýjan dag fyrir leikinn en hann verður fimmtudaginn 22. september kl. 17.00 á Nettóvellinum.
Einnig er búið að færa allar leikina í 21. umferð Pepsi-deildar karla af laugardeginum 24. september og þeir verða þess í stað leiknir sunnudaginn 25. september. Keflavík á útileik gegn Víkingum sem verður þá á Víkingsvelli sunnudaginn 25. september kl. 16:00.