Nýr leikmaður til Keflavíkur
Magnús Ólafsson framherji er genginn til liðs við Keflavík frá Njarðvík. Magnús hefur áður spilað með Reyni Sandgerði, Víði, Haukum og KR. Magnús var m.a. markahæstur leikmaður annarrar deildar árið 2001 með 24 mörk en hann lék þá með Haukum og eftir það lá leiðin til KR. Við bjóðum Magnús velkominn í hópinn en hann er löglegur í leiknum gegn Grindavík í kvöld.
Magnús mættur á æfingu hjá Keflavík.
(Mynd: Jón Örvar Arason)