Fréttir

Knattspyrna | 29. desember 2007

Nýr leikmaður til Keflavíkur

Nýr leikmaður er genginn til liðs við Keflavíkur og heitir hann Ivica Skiljo.  Hann er uppalinn í Gautaborg, hjá Kortedala IF sem einnig er uppeldisfélag Kenneths Gustavssonar.  Hann hefur bæði leikið í Allsvenskan (úrvalsdeild) sem og Superettan (1. deild) í Svíþjóð.  Skiljo er hugsaður sem miðvörður hjá okkur og er leikmaður sem er sterkur varnarlega í leikstöðunni maður gegn manni.  Hann er drífandi leikmaður sem hrífur meðspilara sína áfram og fer ávallt fram í vítateig andstæðinganna í föstum leikatriðum og hefur skorað þar ófá mörkin.   Skiljo er 27 ára gamall varnarmaður og hefur spilað með eftirtöldum liðum; Kertedala IF, BK Häcken, Trelleborg FF og Örgryte IS.  Við bjóðum Skiljo velkominn í hópinn hjá okkur.