Fréttir

Nýr þjálfari hjá Keflavík
Knattspyrna | 27. september 2013

Nýr þjálfari hjá Keflavík

Heiðar Birnir Torleifsson hefur verið ráðinn til Keflavíkur og verður hann þjálfari meistaraflokks kvenna og yfirþjálfari yngri flokka ásamt því að vera íþróttafulltrúi Knattspyrnudeildar. 

Heiðar Birnir hefur mikla reynslu i þjálfun og hefur m.a. starfað hjá ýmsum félögum og við knattspyrnuskóla.  Knattspyrnudeildin bindur miklar vonir við Heiðar Birni og reiknar með ferskum vindum með ráðningu hans.

Knattspyrnudeildin býður Heiðar Birni velkomin til Keflavíkur.