Fréttir

Knattspyrna | 6. júlí 2005

Nýr þjálfari til Keflavíkur

Nýr þjálfari hefur tekið til starfa hjá knattspyrnudeild Keflavíkur, Haukur Benediktsson.  Haukur mun sjá um þjálfun 4. flokks karla ásamt því að vera aðstoðarþjálfari 2. flokks karla.  Haukur hefur undanfarin ár þjálfað meistaraflokk BÍ á Ísafirði auk þess að leika með þeim.  Haukur er nýfluttur  til Keflavíkur og bjóðum við Hauk og fjölskyldu hans sérstaklega velkomin og vonumst eftir því að starfskraftar hans eigi eftir að reynast félaginu vel.