Fréttir

Knattspyrna | 29. mars 2012

Nýr vefur með úrslitaþjónustu íslenskra fótboltaleikja

Fyrr í mánuðinum opnaði vefurinn Úrslit.net en þar er hægt að sjá úrslit og markaskorara úr öllum fótboltaleikjum sem fara fram hér á landi.

Vefurinn er stofnaður til að veita betra aðgengi að úrslitaveitu úr íslenska boltanum og sérhæfir sig í að koma úrslitum úr kappleikjum á netið með sem skemmstum tíma.

Vefurinn hefur þegar fengið góðar mótttökur og helstu fréttamiðlar landsins úr fótboltaheiminum hafa nýtt sér upplýsingar þaðan í fréttir sínar.

Vefurinn er einnig aðgengilegur fyrir farsímaútgáfur vefa, á m.urslit.net.

Það eru bræðurnir Arnar Daði Arnarsson og Ragnar Miguel Herreros sem eiga veg og vanda að vefnum.

Vefslóðir Úrslit.net
Heimasíðan: http://www.urslit.net/
Snjallsímavefur: http://m.urslit.net/
Facebookvefur: http://www.facebook.com/pages/%C3%9Arslitnet/287550651298497
Twittervefur: https://twitter.com/#!/Urslitnet