Fréttir

Nýtt æfingasvæði
Knattspyrna | 7. júní 2012

Nýtt æfingasvæði

Nú þegar sumaræfingar hefjast hjá yngri flokkum Keflavíkur í knattspyrnu mun nýtt æfingasvæði verða tekið í notkun.  Nýja æfingasvæðið er fyrir ofan Reykjaneshöllina.  Keyrt er að svæðinu frá hringtorginu á Borgarbraut (nýi flugvallarvegurinn).  Iðkendur sem koma gangandi/hjólandi eru eindregið hvattir til þess að nota undirgöngin á Borgarbraut sem er mun öruggari kostur en að fara yfir götuna.  Við nýja svæðið eru salerni og vaskar.