Nýtt æfingatímabil hjá 8. flokki
Nú eru knattspyrnuæfingarnar hjá þeim allra yngstu að hefjast á ný. Æfingarnar eru fyrir stráka og stelpur fædd 2009 og 2010. Það verða tvær æfingar á viku í boði, annars vegar í Reykjaneshöll og hins vegar í íþróttahúsinu við Sunnubraut. Iðkendur geta valið hvort þeir mæti á báðar æfingarnar eða eingöngu eina æfingu.
Æfing í íþróttahúsinu við Sunnubraut (æfing 1):
Þrátt fyrir að um fótboltaæfingar sá að ræða þá er mikil áhersla á leiki, boltaæfingar, þrautabrautir og fjölbreytta hreyfingu. Æfingarnar eru eins konar "íþróttaskóli" þar sem knattspyrnan er höfð að leiðarljósi. Áhersla er lögð á heildarþroska barnsins, jafnt andlegan sem líkamlegan, eflingu félagsþroska ásamt aukinni hreyfifærni. Æskilegt er að foreldrar mæti með börnum sínum á æfingarnar. Æfingin er hugsuð sem skemmtileg fjölskyldustund og er foreldrum velkomið að vera nærri barni sínu ef barninu líður betur við slíkar aðstæður.
- Æfingatími: Þriðjudagar, íþróttahúsinu við Sunnubraut, kl. 17:35 - 18:30
- Æfingatímabil: Fyrsta æfing 3. febrúar, síðasta æfing 28. apríl (frí tvo þriðjudaga í kringum páskana).
Æfing í Reykjaneshöll (æfing 2):
Á þessum æfingum verður knattspyrnan í fyrirrúmi. Tækniæfingar með bolta, leikir og mikið spil.
Þessar æfingar eru sérstaklega ætlaðar fyrir börn sem eru með mikinn fótboltaáhuga.
- Æfingatími: Föstudagar í Reykjaneshöll, kl. 16:50 - 17:35
- Æfingatímabil: Fyrsta æfing föstudaginn 6. feb, síðasta æfing 24. apríl (frí einn föstudag í kringum páskana).
Innritun:
Sendið skráningu á neðangreint netfang með eftirfarandi upplýsingum:
Nafn barns:
Kennitala barns:
Nafn foreldra/forráðamanna:
GSM foreldra/forráðamanna:
Skrá barnið á:
___ Æfingu 1 (Sunnubraut)
___ Æfingu 2 (Reykjaneshöll)
___ Æfingu 1 og 2 (Sunnubraut og Reykjaneshöll)
Öllum skráningum verður svarað með staðfestingu í tölvupósti.
Athugið að skráning í 8. flokki er EKKI í NÓRA kerfinu.
Gjald:
7500 kr. ef valið er að æfa einu sinni í viku.
13.000 kr. ef valið er að æfa tvisvar sinnum í viku.
Systkinaafsláttur:
Barn 2 greiðir hálft gjald, frítt fyrir barn 3.
Afsláttur á einungis við innan 8. flokks.
Þjálfarar hjá 8. flokki eru:
Gunnar Magnús Jónsson, íþróttafræðingur
Ragnar Steinarsson, íþróttafræðingur
Aðstoðaþjálfarar:
Gná Elíasdóttir
Karitas Guðrún Fanndal
Tinna Björg Gunnarsdóttir
Allar nánari upplýsingar má nálgast á netfanginu:
fotbolti_keflavik8fl@simnet.is