Nýtt námskeið hjá 8. flokki hefst á mánudag
Knattspyrnuæfingar hjá 8. flokki (námskeið 2) Keflavíkur hefjast mánudaginn 4. júlí.
Skráning: Sendið skráningu á neðangreint netfang með upplýsingum um nafn og kennitölu barns.
Staðfesting á skráningu verður send til baka.
Aldur: Piltar og stúlkur fædd 2005, 2006 og 2007.
Æfingatími: mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 16:10 – 17:10
Æfingastaður: Æfingasvæðið að Iðavöllum 7.
Farið verður inn í Reykjaneshöll ef illa viðrar fyrstu vikuna.
Reykjaneshöllin verður lokuð v/sumarleyfa frá og með 8. júlí og verða því allar æfingar utandyra þegar höllin er lokuð.
Æfingatímabil: 4. júlí – 26. júlí (11 æfingar)
Verð: 5000 kr. fyrir námskeiðið. Ef fyrra námskeiðið var sótt, þá er gjaldið fyrir seinna námskeiðið 3000 kr.
Systkinaafsláttur er veittur; annað barn greiðir hálft gjald, þriðja barn frítt.
Þjálfari: Ragnar Steinarsson
Skráning og allar nánari upplýsingar:
fotbolti_keflavik8fl@simnet.is