Ómar áfram með Keflavík
Ómar Jóhannsson verður áfram í marki Keflavíkur en hann hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Það eru ánægjulegar fréttir enda lék Ómar afar vel seinni hluta sumars eftir hann jafnaði sig af meiðslum og mætti að nýju í markið.
Ómar 32 ára gamall og lék fyrst með meistarflokki Keflavíkur árið 2002. Hann hefur leikið 180 deildarleiki, 18 bikarleiki og 9 Evrópuleiki fyrir félagið auk þess að leika með liðum í Svíþjóð. Ómar varð bikarmeistari með Keflavík árið 2006.
Ómar lék með öllum yngri landsliðum Íslands og var nokkrum sinnum í hópi hjá A-landsliðinu án þess að leika með því.