Ómar og Guðjón framlengja
Þeir Ómar Jóhannsson og Guðjón Árni Antoníusson hafa báðir framlengt samninga sína við Keflavík. Þeir voru meðal þeirra leikmanna okkar sem voru með lausa samninga eftir keppnistímabilið en hafa nú ákveðið að vera áfram í okkar herbúðum. Það er okkur mikil ánægja að þeir félagar hafa kosið að leika áfram með Keflavík en verið er að vinna í samningamálum annarra leikmanna og má vænta frekari frétta af þeim málum á næstu dögum.
Myndir: Jón Örvar