Fréttir

Knattspyrna | 26. mars 2012

Öruggt gegn KA

Keflavík vann góðan sigur á KA þegar liðin mættust í Lengjubikarnum um helgina en leikurinn fór fram í Reykjaneshöllinni.  Lokatölur urðu 2-1 en sigurinn var reyndar öruggari en tölurnar gefa til kynna.  Það var Bojan Stefán Ljubicic sem gerði bæði mörk okkar manna í fyrri hálfleik en Jóhann Helgason minnkaði muninn fyrir gestina í þeim seinni.

Eftir leikinn er Keflavík í 2. sæti riðilsins með 12 stig og hefur nú unnið fjóra leiki í röð eftir að hafa tapað fyrsta leiknum í riðlinum.  Næsti leikur er gegn ÍR í Egilshöllinni sunnudaginn 1. apríl kl. 16:00.