Öruggur sigur á Fram
Keflavík vann stórsigur á Fram 4-1 í Lengjubikarnum þegar liðin mættust í Reykjaneshöllinni í gærkvöldi. Okkar menn byrjuðu leikinn mjög vel og komust yfir strax á 8. minútu með marki frá Jóni Gunnari. Jóhann Birnir bætti svo við tveimur mörkum og staðan var 3-0 í hálfleik. Hörður skoraði svo fjórða markið eftir fallega sókn. Ívar Björnsson skoraði mark Fram. Símun Samuelsen átti stórleik fyrir okkur og lagði upp öll mörkin.
Keflavík eru í efsta sæti riðilsins með 9 stig eftir þrjá leiki og markatöluna 11-5. Næsti leikur í Lengjubikarnum er gegn HK föstudaginn 3. apríl í Kórnum.
Keflavík: Magnús Þormar - Guðjón, Bjarni, Nicolai (Brynjar 46.), Tómas (Sigurður 89.) - Jóhann Birnir, Hólmar Örn, Jón Gunnar (Einar Orri 85.), Símun (Sigurbergur 85.) - Magnús Sverrir (Magnús Þórir 85.), Haukur Ingi (Hörður 46.). Árni Freyr var á bekknum.
Markaskorararnir Jóhann, Hörður og Jón Gunnar.
Símun átti stórleik og lagði upp öll mörkin.