Öruggur sigur gegn ÍBV
Keflavík vann öruggan sigur á ÍBV þegar liðin mættust í Lengjubikarnum um helgina en lokatölur urðu 3-1. Guðmundur Steinarsson kom okkar mönnum yfir snemma leiks en Ian Jeffs jafnaði fyrir Eyjamenn og staðan var 1-1 þegar flautað var til leikhlés. Keflavík tryggði sér síðan sigurinn með tveimur mörkum í seinni hálfleik og að þessu sinni voru það ungu mennirnir sem sáu um það. Arnór Ingvi Traustason kom okkar liði yfir á 68. mínútu og Sigurbergur Elísson gulltryggði svo sigurinn tíu mínútum síðar.
Keflavík er nú í 3. sæti riðilsins með 9 stig eftir fjóra leiki. Liðið hefur nú unnið þrjá leiki í röð eftir að hafa tapað fyrsta leiknum gegn Víkingum. Næsti leikur er svo gegn KA í Reykjaneshöllinni laugardaginn 24. mars kl. 16:00.
Mynd: Arnór Ingvi skoraði gegn Eyjamönnum.