Páll Olgeir í Keflavík
Páll Olgeir Þorsteinsson hefur gengið til liðs við Keflavík og gerir tveggja ára samning við félagið.
Páll Olgeir verður tvítugur á árinu og á fjölmarga leiki með yngri landsliðum Íslands. Hann á einnig 17 leiki að baki í efstu deild með Breiðabliki og Víking.
Knattspyrnudeildin býður Pál Olgeir velkomin í Keflavík.
Á myndinni er Páll með Kristjáni þjálfara eftir undirritun samningsins.