Fréttir

Paul McShane í Keflavík
Knattspyrna | 6. janúar 2014

Paul McShane í Keflavík

Paul McShane er genginn til liðs við Keflavík en hann hefur gert eins árs samning við félagið.  Paul er 35 ára gamall miðjumaður en hann lék 14 deildarleiki og 2 bikarleiki með Keflavík árið 2010 og skoraði eitt mark í hvorri keppni.  Paul lék með Aftureldingu síðasta sumar en hefur einnig leikið með Fram og Grindavík hér á landi.  Hann lék fyrst á Íslandi árið 1998 og hefur leikið 269 deildar- og bikarleiki hér á landi og hefur skorað í þeim 40 mörk.

Við bjóðum Paul velkominn aftur til Keflavíkur.