Fréttir

Knattspyrna | 14. október 2009

Paul McShane og Jón Gunnar skipta um lið

Keflavík og Fram hafa komist að samkomulagi um félagaskipti þeirra Paul McShane og Jóns Gunnars Eysteinssonar.  McShane gengur þar með til liðs við Keflavík en Jón Gunnar fer til Fram.  Af þessu tilefni hafa knattspyrnudeildir Keflavíkur og Fram sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem deildirnar lýsa ánægju með góð samskipti varðandi þessi félagaskipti.

Það þarf ekki að kynna Paul McShane fyrir knattspyrnuáhugamönnum enda hefur hann leikið á Íslandi frá árinu 1998, fyrst með Grindavík og síðan Fram.  Hann á að baki 177 leiki í efstu deild og hefur skorað í þeim 23 mörk.  Við bjóðum Paul velkominn til Keflavíkur.

Myndir: Jón Örvar