Ray Anthony í Keflavík
Ray Anthony Jónsson er genginn til liðs við Keflavík en hann kemur frá nágrönnum okkar í Grindavík. Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning.
Ray Anthony er varnarmaður og hefur leikið allan sinn feril með Grindavík. Hann á að baki 182 leiki fyrir félagið í efstu deild og er næst leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi. Auk þess hefur Ray leikið 29 landsleiki með landsliði Filippseyja en hann lék einnig með U-21 ára landsliði Íslands á sínum tíma.
Ray er fyrsti leikmaður sem bætist í leikmannhóp Keflavík fyrir næsta tímabil en frekari frétta er að vænta af leikmannamálum á næstunni.
Knattspyrnudeild Keflavíkur býður Ray velkominn til Keflavíkur.