Fréttir

Knattspyrna | 15. desember 2008

Sævar og Geysir í hóp samstarfsaðila

Tvö öflug fyrirtæki hafa bæst í hóp fjölmargra samstarfsaðila Knattspyrnudeildar.  Bílaleigan Geysir hefur gert samning við deildina og mun styrkja knattspynufólk í Keflavík næstu tvö árin.  Þá munu Hópferðir Sævars aka meistaraflokkum karla og kvenna í alla útileiki sumarið 2009.  Það voru Garðar Vilhjálmsson frá Geysi, Sævar Baldursson frá Hópferðum Sævars og Þorsteinn Magnússon formaður Knattspyrnudeildar sem undirrituðu samningana.  Við þökkum þessum ágætu fyrirtækjum stuðninginn.


Garðar, Þorsteinn og Sævar eftir undirritunina.
(Mynd: Jón Örvar)