Salih Heimir Porca þjálfar kvennaliðið
Salih Heimir Porca hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna í knattspyrnu. Samningurinn er til þriggja ára og eru forráðamenn Keflavíkurliðsins himinlifandi með að hafa krækt í kappann. Salih Heimir Porca spilaði lengi hér á landi við góðan orðstír og síðastliðið ár þjálfaði hann kvennalið Hauka. Porca mun einnig sjá um 2. flokk félagsins þar til annar þjálfari verður ráðinn fljótlega. Æfingar hefjast 23. október. Við bjóðum Salih Heimir Porca velkominn til leiks og væntum mikils af hans störfum fyrir félagið.
Myndir: Jón Örvar Arason