Samið við unga leikmenn
Á dögunum skrifuðu tveir af okkar ungu leikmönnum undir tveggja ára samninga við Keflavík. Þetta eru þeir Elías Már Ómarsson og Samúel Kári Friðjónsson. Elías Már er fæddur 1995 en Samúel Kári árið 1996 og leika þeir með 3. flokki. Þeir félagar léku báðir með U-17 ára landsliðum Íslands á Norðurlandamótinu í sumar og var Elías Már í sigurliði Íslands í mótinu en Samúel Kári lék með yngra liði Íslands sem varð í 4. sæti.
Myndir: Jón Örvar
Elías Már og Samúel Kári.
Samúel Kári...
...og Elías Már.
-
Strákarnir ásamt Þorsteini formanni.