Fréttir

Samið við unga leikmenn
Knattspyrna | 6. júní 2013

Samið við unga leikmenn

Það hefur verið stefna Knattspyrnudeildar Keflavíkur að gera leikmannasamninga við unga leikmenn félagsins og á dögunum bættust fimm í hópinn.  Skrifað var undir samningana í félagsheimilinu við Sunnubraut en þeir sem gerðu samninga að þessu sinni voru þeir Arnór Svansson, Bergþór Ingi Smárason, Einar Þór Kjartansson, Jón Tómas Rúnarsson og Leonard Sigurðsson.  Arnór og Bergþór eru fæddir árið 1994 en Einar, Jón og Leonard árið 1996 en þessir piltar leika allir með 2. flokki.  Þess má geta að nú eru tíu leikmenn 2. flokks Keflavíkur með leikmannsamning við félagið.

Á myndinni að neðan eru piltarnir með Kjartani Steinarssyni varaformanni Knattspyrnudeildar, Hauki Benedikssyni þjálfara 2. flokks karla og Smára Helgasyni, formanni unglingaráðs.