Samkaups-mótið á laugardag
Þá styttist í 5. flokks mót Keflavíkur sem ber nafnið „SAMKAUPS-mótið“. Leikið verður í Reykjaneshöll laugardaginn 3. mars. Alls eru 32 lið skráð til leiks frá 9 félögum; Keflavík, Njarðvík, Grindavík, KR, Reynir/Víðir, Þór Akureyri, Selfoss, Skallagrím og Val. Leikið er í fjórum deildum. Gera má ráð fyrir um 350 keppendum auk þjálfara, liðstjóra og vonandi mikils fjölda foreldra/forráðamanna. Það má því búast við miklu fjöri í Reykjaneshöllinni á laugardaginn.
Argentíska deildin
Brasilíska deildin
Chile-deildin
Danska deildin
Allir leikir
Vallarskipan
Reglur og skipulag
Athugið að ofantalin skjöl er á PDF-formi.