Samningar við sex leikmenn kvennaliðsins
Á dögunum var gengið frá samningum við sex leikmenn kvennaliðs Keflavíkur. Þessir leikmenn eru á myndinni með fréttinni frá vinstri Ljiridona Osmani, Sveindís Jane Jónsdóttir, Birgitta Hallgrímsdóttir, Amber Pennybaker, Þóra Kristín Klemenzdóttir og Brynja Pálmadóttir. Á hinni myndinni eru einnig Jón G. Benediktsson formaður knattspyrnudeildar og Benedikta Benediktsdóttir formaður kvennaráðs.