Fréttir

Knattspyrna | 8. maí 2010

Samstarf við fyrirtæki Hitaveitunnar

Knattspyrnudeild Keflavíkur og fyrirtæki Hitaveitu Suðurnesja undirrituðu á dögunum nýjan samstarfssamning.  Í samningnum felst að fyrirtækin, HS Veitur og HS Orka styðja við bakið á knattspyrnufólki í Keflavík.  Þetta er mjög ánægjulegt fyrir okkur enda á ferðinni öflugt fyrirtæki sem hefur stutt starfsemi deildarinnar á ýmsa vegu í gegnum árin.  Það voru Júlíus Jónssons forstjóri Hitaveitunnar og Þorsteinn Magnússon formaður Knattspyrnudeildar sem undirrituðu samninginn.

HS Orka
Fyrirtækið sér um framleiðsluna. Það á og rekur orkuverin í Svartsengi og á Reykjanesi, dælustöð og miðlunargeyma inn á Fitjum og aðveituæð frá Svartsengi inn á Fitjar.  Landið sem fyrirtækið vinnur jarðvarma úr er í eigu opinberra aðila, eða með öðrum orðum, almennings.  Fyrirtækið greiðir árlega eigendum jarðanna auðlindagjald fyrir afnot af auðlindunum

HS Veitur
Fyrirtækið sér um dreifingu afurða orkuveranna til viðskiptavina.  Það á og rekur dreifikerfi vatns- og rafmagns á dreifisvæðum fyrirtækisins. Dreifisvæðið er Reykjanes, Hafnarfjörður, Álftanes og hluti Garðabæjar, Árborg og Vestmannaeyjar.  Á Reykjanesi og Vestmannaeyjum er dreifing á heitu og köldu vatni og rafmagni.  Á Hafnarfjarðarsvæðinu og í Árborg er dreifing á rafmagni.


Þorsteinn og Júlíus handsala samninginn.