Fréttir

Knattspyrna | 31. mars 2011

Samstarf við InnX

Knattspyrnudeild Keflavíkur og InnX Innréttingar undirrituðu á dögunum samstarfssamning.  Það voru Þorsteinn Magnússon, formaður Knattspyrnudeildar, og eigendur InnX, Marten Ingi Lövdahl og Steinar Örn Ingimundarson, sem undirrituðu samninginn.  Flestir kannast auðvitað við Steinar sem þjálfara meistaraflokks kvenna.  Fyrirtækið mun styðja knattspyrnuna í Keflavík og það er okkur sönn ánægja að bjóða InnX velkomið í öflugan hóp styrktaraðila deildarinnar.


Þorsteinn, Steinar og Marten skrifa undir.