Fréttir

Knattspyrna | 11. maí 2009

Samstarf við Skólamat

Knattspyrnudeild Keflavíkur og Skólamatur hafa undirritað samstarfssamning til eins árs.  Það voru feðgarnir Axel Jónsson og Jón Axelsson sem undirrituðu samninginn fyrir hönd fyrirtækisins ásamt Þorsteini Magnússyni, formanni Knattspyrnudeildarinnar.  Skólamatur hefur styrkt deildina á ýmsan hátt undanfarin ár og það er ánægjulegt að framhald verði á samstarfinu við þetta öfluga fyrirtæki.  Skólamatur matreiðir mat fyrir grunnskóla á Suðurnesjum og höfuðborgarsvæðinu en fyrirtækið var stofnað árið 2001.


Axel, Jón og Þorsteinn við undirritun samningsins.