Samuel Hernandez í Keflavík
Samuel Hernandez er genginn til liðs við Keflavík. Samuel er frá Spáni og lék með Víkingi Ólafsvík síðustu tvö sumar, m.a. í Pepsi-deildinni árið 2013. Hann er þegar kominn með leikheimild og gæti tekið þátt í fyrsta leik okkar manna á sunnudaginn.
Samuel er örvfættur og leikur í stöðu vinstri bakvarðar eða kantmanns. Hann er 27 ára gamall og hefur leikið með liðum í neðri deildunum á Spáni.
Við bjóðum Samuel velkominn í hópinn.
Myndin með fréttinni er fengin að láni af vefsíðu stuðningsmanna Víkinga í Ólafsvík.