Fréttir

Knattspyrna | 11. október 2011

Samúel Kári í heimsókn hjá AGF

Einn af okkar ungu og efnilegu leikmönnum, Samúel Kári Friðjónsson, fer í vikunni til Danmerkur þar sem hann heimsækir danska félagið AGF frá Árósum.  Samúel mun dvelja í nokkra daga hjá AGF hann mun m.a. leika með unglingaliði félagsins.  Samúel Kári er fæddur árið 1996 og leikur með 3. flokki Keflavíkur.  Hann lék með U-17 ára landsliðinu á Norðurlandamótinu í sumar.  Við óskum Samúel góðrar ferðar til Danaveldis.