Samúel Kári til Reading
Samúel Kári Friðjónsson er á leiðinni til reynslu hjá enska úrvalsdeildarliðinu Reading. Hann verður hjá liðinu í viku þar sem hann mun æfa og leika með unglingaliði félagsins. Samúel var hjá Reading í ágúst og félagið hefur nú boðið honum aftur til sín.
Samúel Kári er 16 ára gamall en hann var þrátt fyrir ungan aldur nokkrum sinnum í leikmannahópi Keflavíkur í Pepsi-deildinni í sumar. Hann á að baki 11 leiki með U-17 ára landsliði Íslands og hefur m.a. verið fyrirliði liðsins.
Við óskum Samúel góðs gengis ytra.