Samúel Kári til Reading
Knattspyrnudeildin hefur náð samkomulagi um sölu á Samúel Kára Friðjónssyni til Reading á Englandi. Samúel á eftir að semja við félagið um kaup og kjör en hann hafði tvívegis farið til Reading til æfinga á þessu ári. Ekki er enn vitað hvenær pilturinn fer til Reading en þess má geta að hann er yngsti leikmaðurinn sem Keflavík selur til erlends liðs.
Samúel er einungis 16 ára gamall, fæddur 1996, og er því á fyrsta ári í öðrum flokki. Hann hefur leikið 11 leiki fyrir U-17 ára liðs Íslands og hefur sjö sinnum verið fyrirliði liðsins. Þrátt fyrir ungan aldur var hann nokkrum sinnum í leikmannahópi Keflavíkur í Pepsi-deildinni í sumar.
Það er ljóst að þessi félagaskipti er mikil viðurkenning fyrir það starf sem hefur verið unnið varðandi uppeldi ungra knattspyrnumanna hjá Keflavík og rós í hnappagat allra þeirra sem hafa komið að þjálfun Samúels.
Knattspyrnudeildin óskar Samúel alls hins besta í framtíðinni í heimi atvinnumennskunnar.