Samúel Kári til Reading
Samúel Kári Friðjónsson er formlega genginn í raðir enska úrvalsdeildarliðsins Reading. Hann gerir tveggja ára atvinnumannasamning við félagið og verður því í þeirra röðum til ársins 2015. Tómas Ingi Urbancic gengur einnig til liðs við Reading frá Víkingum. Piltarnir verða í unglingaakademíu Reading fram á vor en skrifa undir samninga þegar opnað verður fyrir félagaskipti.
Samúel Kári er 17 ára gamall og hefur leikið nokkra leiki með Keflavík í Lengjubikarnum en hann var einnig nokkrum sinnum í leikmannahópnum í Pepsi-deildinni síðasta sumar. Hann á að baki tvo leiki með U-19 ára landsliðinu og 11 með U-17 ára liðinu.
Við óskum Samúel og Tómasi góðs gengis í atvinnumennskunni.