Fréttir

Samúel Þór í U-17 ára hópnum
Knattspyrna | 2. apríl 2014

Samúel Þór í U-17 ára hópnum

Nokkrir af okkar ungu leikmönnum taka þátt í verkefnum með yngri landsliðum Íslands þessa dagana.  Samúel Þór Traustason er á leið til N-Írlands með U-17 ára landsliði karla.  Þorlákur Már Árnason, þjálfari U17 landsliðs karla, hefur valið 18 leikmenn fyrir undirbúningsmót UEFA sem verður leikið Norður-Írlandi í apríl.  Auk Íslendinga leika Norður-Írar, Wales-menn og Færeyingar í mótinu, og eru liðin skipuð leikmönnum fæddum 1998 og síðar.  Leikdagarnir eru 8., 9. og 11 apríl og er leikið í Belfast.  Þessar sömu þjóðir léku í sams konar móti á sama stað á síðasta ári.

Við óskum Samúel og félögum hans á liðinu góðrar ferðar og góðs gengis.