Fréttir

Sannfærandi sigur á KR
Knattspyrna | 20. júní 2013

Sannfærandi sigur á KR

Eldri flokkur Keflavíkur spilaði gegn KR á Íslandsmóti eldri flokks á miðvikudagskvöld, leikið var á Iðavöllum 7. Þetta var annar leikur liðsins á tímabilinu, en mikið hefur verið um frestanir á leikjum liðsins. Skemmst er frá því að segja að drengirnir í Keflavík unnu mjög svo sannfærandi sigur. Staðan í hálfleik var 2 - 1 fyrir heimamenn og þegar upp var staðið höfðu Keflvíkingar gert 6 mörk gegn 3 frá þeim röndóttu. 

Mörk Keflavíkur í leiknum gerðu: Margeir Vilhjálmsson 3, Gunnar Oddsson, Friðrik Bergmannsson og Georg Birgisson.

Leikskýrsla frá leiknum.
Staðan í eldri flokki.


Markaskorarar Keflavíkur gegn KR:
Gunnar Oddsson, Georg Birgisson, Margeir Vilhjálmsson og Friðrik Bergmannsson