Fréttir

Sannur stuðningsmaður
Knattspyrna | 10. apríl 2014

Sannur stuðningsmaður

Félag eins og Keflavík væri lítils virði án stuðningsmanna sinna og það á auðvitað við um öll íþróttafélög.  Einn af dyggustu stuðningsmönnun Keflavíkur er Ástvaldur Ragnar Bjarnason sem hefur í mörg ár stutt knattspyrnulið Keflavíkur af heilum hug og missir nánast ekki af leik.  Ástvaldur lét sitt af mörkum rakna þegar Herrakvöld Knattspyrnudeildar var haldið á dögunum og lagði til mynd í málverkauppboð kvöldsins.  Myndin seldist fyrir ágæta upphæð og andvirðið rann til deildarinnar.  Við þökkum Ástvaldi hans framlag og stuðninginn.