Seinni leikurinn hjá stelpunum
Þriðjudaginn 30. ágúst leika Keflavík og Selfoss seinni leik sinn í undanúrslitum 1. deildar kvenna. Leikurinn fer fram á Selfossvelli og hefst kl. 17:30. Keflavík vann fyrri leikinn 3-2 og það stefnir því í hörkuleik á Selfossi. Liðið sem sigrar í einvíginu tryggir sér sæti í úrvalsdeild að ári og leikur til úrslita í 1. deildinni. Í hinni undanúrslitaviðureigninni leiða FH og Haukar saman hesta sína og þar eru FH-ingar svo gott sem búnir að tryggja sér sæti í efstu deild eftir 8-1 sigur í fyrri leiknum. Úrslitaleikurinn í deildinni fer fram laugardaginn 3. september.