Fréttir

Selfoss - Keflavík á fimmtudag kl. 17:00
Knattspyrna | 19. september 2012

Selfoss - Keflavík á fimmtudag kl. 17:00

Fimmtudaginn 20. september er komið leik gegn Selfossi í 20. umferð Pepsi-deildarinnar.  Leikurinn fer fram á Selfossvelli og hefst kl. 17:00.  Fyrir leikinn er Keflavík í 7. sæti deildarinnar með 27 stig en Selfoss er í 11. sæti með 18 stig.  Selfyssingar eru því í harðri fallbaráttu en úr þessu er ljóst að okkar lið siglir fremur lygnan sjó um miðja deild.  Dómari verður enginn annar en Kristinn Jakobsson, aðstoðardómarar hans verða Frosti Viðar Gunnarsson og Ásgeir Þór Ásgeirsson en eftirlitsmaður KSÍ er Ari Þórðarson.

Hér kemur venjulega löng þula um fyrri leiki liðanna en sú saga er ekki löng milli Keflavíkur og Selfoss í efstu deild.  Liðin léku tvö leiki þar árið 2010 þegar Selfyssingar léku þar í fyrsta sinn og svo aftur í sumar.  Það er óhætt að segja að jafnræði hafi verið með liðunum í þessum leikjum því hvort lið hefur unnið einn leik og einum hefur lokið með jafntefli.  Markatalan er svo auðvitað jöfn eða 6-6.  Hörður Sveinsson skoraði tvö mörk gegn Selfossi árið 2010 og Jóhann Birnir Guðmundsson skoraði í fyrri leik liðanna í sumar.

Liðin hafa hins vegar leikið eina átta leiki í næstefstu deild, þá fyrstu árið 1981 og síðast árið 1992.  Keflavík vann fimm leikjanna en þremur þeirra lauk með jafntefli.  Markatalan er 20-4 fyrir Keflavík.

Liðin hafa fjórum sinnum mæst í bikarkeppninni og hefur Keflavík alltaf sigrað.  Liðin léku fyrst í 16 liða úrslitum árið 1974 og þá skoraði Steinar Jóhannsson eina mark leiksins á Selfossi.  Liðin mættust aftur í 16 liða úrslitum árið 1988 og þá vann Keflavík í vítaspyrnukeppni eftir markalaust jafntefli á Keflavíkurvelli.  Keflavík vann aftur nauman heimasigur árið 1990 þegar Selfyssingar komu í heimsókn í 8 liða úrslitum keppninnar en þeim leik lauk 3-2.  Liðin léku síðast bikarleik árið 2002 og þá vann Keflavík öruggan 4-0 sigur fyrir austan fjall í 32 liða úrslitunum.  Þess má geta að Magnús Þorsteinsson skoraði tvö mörk í þeim leik.   Zoran Daníel Ljubicic, Ómar Jóhannsson, Haraldur Freyr Guðmundsson og Jóhann R. Benediktsson tóku einnig þátt í þeim leik og liðsstjórinn Jón Örvar Arason kom inn á sem varamaður!

Liðin léku fyrr í sumar á Nettó-vellinum og gerðu þá 2-2 jafntefli.  Jóhann Birnir Guðmundsson og Arnór Ingvi Traustason skoruðu fyrir Keflavík en Babacar Sarr og Jón Daði Böðvarsson gerðu mörk Selfyssinga. 

Það hefur ekki verið mikill samgangur milli Keflavíkur og Selfoss í gegnum árin.  Selfyssingurinn Anton Hartmannsson var varamarkmaður Keflavikur árið 1997 og lék í síðasta leiknum það sumarið.  Sonur Antons, Einar Ottó, hefur leikið með Selfossi undanfarin ár en hann var í okkar herbúðum árið 2003 og lék þá nokkra bikarleiki með U-23 ára liði Keflavíkur.  Þá hefur Gústaf Adolf Björnsson þjálfað bæði liðin.