Selfoss - Keflavík á fimmtudag kl. 19:15
Fimmtudaginn 19. ágúst skreppa okkar menn á Suðurlandið og heimsækja Selfyssinga í 16. umferð Pepsi-deildarinnar. Heimamenn vígja þá nýjan og glæsilegan grasvöll og þar verður flautað til leiks kl. 19:15. Fyrir leikinn er Keflavík í 4.-5. sæti deildarinnar með 23 stig en Selfoss er með 11 stig í 11 sætinu. Það má því reikna með hörkuleik, fjölda áhorfenda og mikilli stemmningu. Dómari verður enginn annar en Gunnar Jarl Jónsson, aðstoðardómarar hans verða Smári Stefánsson og Sverrir Gunnar Pálmason, varadómari er Vilhjálmur Alvar Þórarinsson en eftirlitsmaður KSÍ er Guðmundur Sigurðsson. Þess má geta að leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Hér kemur venjulega löng þula um fyrri leiki liðanna en sú saga er ekki löng milli Keflavíkur og Selfoss í efstu deild enda leika Selfyssingar þar í fyrsta sinn. Keflavík vann fyrri leik liðanna í sumar en hann fór fram á Njarðtaksvellinum í Njarðvík. Lokatölur urðu 2-1 þar sem Paul McShane og Hörður Sveinsson skoruðu fyrir Keflavík en Sævar Þór Gíslason gerði mark gestanna.
Liðin hafa hins vegar leikið eina átta leiki í næstefstu deild, þá fyrstu árið 1981 og síðast árið 1992. Keflavík vann fimm leikjanna en þremur þeirra lauk með jafntefli. Markatalan er 20-4 fyrir Keflavík.
Liðin hafa fjórum sinnum mæst í bikarkeppninni og hefur Keflavík alltaf sigrað. Liðin léku fyrst í 16 liða úrslitum árið 1974 og þá skoraði Steinar Jóhannsson eina mark leiksins á Selfossi. Liðin mættust aftur í 16 liða úrslitum árið 1988 og þá vann Keflavík í vítaspyrnukeppni eftir markalaust jafntefli á Keflavíkurvelli. Keflavík vann aftur nauman heimasigur árið 1990 þegar Selfyssingar komu í heimsókn í 8 liða úrslitum keppninnar en þeim leik lauk 3-2. Liðin léku síðast bikarleik árið 2002 og þá vann Keflavík öruggan 4-0 sigur fyrir austan fjall í 32 liða úrslitunum. Þess má geta að Magnús Þorsteinsson skoraði tvö mörk í þeim leik. Ómar Jóhannsson, Haraldur Freyr Guðmundsson og Hólmar Örn Rúnarsson tóku einnig þátt í þeim leik og liðsstjórinn Jón Örvar Arason kom inn á sem varamaður!
Það hefur ekki verið mikill samgangur milli Keflavíkur og Selfoss í gegnum árin. Selfyssingurinn Anton Hartmannsson var varamarkmaður Keflavikur árið 1997 og lék í síðasta leiknum það sumarið. Sonur Antons, Einar Ottó, er nú leikmaður Selfoss en hann var í okkar herbúðum árið 2003 og lék þá nokkra bikarleiki með U-23 ára liði Keflavíkur. Þá hefur Gústaf Adolf Björnsson þjálfað bæði liðin.