Fréttir

Knattspyrna | 6. mars 2009

Selfoss - Keflavík á sunnudag kl. 18:00

Á sunnudaginn mætast Selfoss og Keflavík í Lengjubikar karla.  Leikurinn fer fram í Kórnum í Kópavogi og hefst kl. 18:00.  Þetta er annar leikur beggja liða í riðli 2 í A-deild keppninnar.  Okkar menn unnu 3-2 sigur á ÍR í hörkuleik í 1. umferðinni en Selfyssingar töpuðu 1-2 fyrir HK.  Það má því alveg reikna með spennuleik en lið Selfoss lék í 1. deild síðasta sumar og var hársbreidd frá því að tryggja sér sæti í efstu deild.  Dómari leiksins verður Vilhjálmur Alvar Þórarinsson og aðstoðardómarar þeir Smári Stefánsson og Jón Magnús Guðjónsson.


Þeir Gaui og Höddi sáu um mörkin gegn ÍR.