Sigur á ÍR og úrslitakeppnin í Lengjubikarnum framundan
Keflavík vann sigur á ÍR í Lengjubikarnum en liðin léku í Egilshöllinni á sunnudag. Það var Arnór Ingvi Traustason sem skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik. Með sigrinum hefur liðið tryggt sér þátttöku í 8 liða úrslitum keppninnar. Keflavík er nú í 2. sæti riðilsins og á aðeins eftir að leika gegn ÍA sem nú situr í efsta sætinu. Bæði lið eru örugg áfram í keppninni. Leikurinn gegn ÍA verður í Reykjaneshöllinni miðvikudaginn 11. apríl kl. 18:00.