Sigur á Pæjumótinu
Pæjumót TM var haldið á Siglufirði 5.-7. ágúst og voru keppendur um 700. Á mótinu reyna ungar knattspyrnustúlkur með sér og sendi Keflavík lið í 5. flokki á mótið. Okkar stúlkur stóðu sig frábærlega og gerðu sér lítið og sigruðu í keppni A-liða. Við óskum stelpunum til hamingu en hér fylgja myndir af liðinu með sigurlaunin.
Myndir: Petra Lind Einarsdóttir