Fréttir

Knattspyrna | 29. febrúar 2012

Sigur á Stjörnunni í fjörugum leik

Keflavík sigraði Stjörnuna 3-2 í Lengjubikarnum síðastliðinn laugardag en leikið var í Reykjaneshöllinni.  Keflavík byrjaði vel og strax á 9. minútu skoraði Magnús Sverrir Þorsteinsson.  Stjarnan svaraði með tveimur á næstu tíu mínútum, fyrst Tryggvi Bjarnason og svo Gunnar Örn JónssonMagnús Þór Magnússon jafnaði svo leikinn á 33. minútu með laglegu marki og staðan var 2-2 í hálfleik.

Þorsteinn Þorsteinsson kom inn á sem varamaður á 75. minútu og var ekki lengi að setja mark sitt á leikinn.  Hann var búinn að vera ínn á í tvær mínutur þegar hann setti sigurmarkið af miklu harðfylgi.

Næsti leikur er gegn Tindastól í Reykjaneshöllinni 11. mars kl. 16:00.


Magnús Sverrir, Þorsteinn og Magnús Þór skoruðu mörkin.