Sigur á Þór - Fylkir næst
Keflavík vann góðan 4-2 sigur á Þór á sumardaginn fyrsta. Magnús Þorsteinsson skoraði tvö markanna og þeir Hörður Sveinsson og Stefán Gíslason eitt hvor. Með sigrinum tryggðu okkar menn sér sigur í A-riðli deildarbikarsins með 18 stig en ÍA og Fram fengu 13 stig.
Í 8-liða úrslitum keppninnar leikum við gegn Fylkismönnum sem urðu í 4. sæti B-riðils. Leikurinn fer fram fimmtudaginn 1. maí í Keflavík og er stefnt að því að leikurinn fari fram á grasi enda stórleikur í uppsiglingu. Ekki er þó endanlega búið að ákveða leikstað eða tíma.