Fréttir

Knattspyrna | 15. desember 2011

Sigur á Þrótti í æfingaleik

Keflavík sigraði Þrótt Reykjavík í Reykjaneshöllinni í gærkvöldi 1-0 með glæsilegu marki frá Sigurbergi Elíssyni um miðjan seinni hálfleikinn.  Keflavík var mun sterkara liðið og átti nokkur góð færi sem ekki nýttust. Marko Pavlov spilaði með Keflvíkingum í leiknum.  Þróttarar eru með ungt og sprækt lið og greinilegt verið að gera góða hluti þar á bæ.

Keflavík: Ómar Jóhannsson, Eyþór Einarsson, Ásgrímur Rúnarsson, Frans Elvarsson, Viktor Smári Hafsteinsson, Hilmar Geir Eiðsson, Marko Pavlov, Arnór Ingvi Traustason, Jóhann Birnir Guðmundsson, Magnús Sverrir Þorsteinsson og Guðmundur Steinarsson.

Aðrir sem komu við sögu: Árni Freyr Ásgeirsson, Bojan Stefán Ljubicic, Sigurbergur Elísson, Magnús Þór Magnússon, Þorsteinn Þorsteinsson, Sigurður Gunnar Sævarsson, Daníel Gylfason.


Sigurbergur og Marko.


Gunni og Zoran bera saman bækur sínar
.
(Myndir: Jón Örvar)