Fréttir

Sigur gegn Grindavík
Knattspyrna | 26. janúar 2014

Sigur gegn Grindavík

Keflavík vann 4-2 sigur á Grindavík í Fótbolti.net-mótinu en leikurinn fór fram í Reykjaneshöllinni á laugardaginn.  Hörður Sveinsson skoraði tvö markanna og Jóhann Birnir Guðmundsson og Theodór Guðni Halldórsson eitt hvor.  Mörk Grindavíkur gerðu Scott Ramsay og Óli Baldur Bjarnason.

Þessi úrslit þýða að Keflavík leikur um 3. sætið í mótinu gegtn Haukum.  Sá leikur verður í Reykjaneshöllinni laugardaginn 31. febrúar kl. 10:00.  FH og Keflavík fengu bæði sex stig í riðlinum en FH náði efsta sætinu á markatölu.

Jón Örvar tók myndina með fréttinni en á henni eru markaskorarar Keflavíkur, Theodór Guðni, Jóhann Birnir og Hörður