Fréttir

Sigur hjá eldri flokki gegn Létti
Knattspyrna | 16. ágúst 2012

Sigur hjá eldri flokki gegn Létti

Eldri flokkur Keflavíkur er með fullt hús stiga á Íslandsmótinu í ár. Drengirnir lék gegn Létti á Iðavöllum á miðvikudagskvöld í sannkallaðri rjómablíðu. Keflvíkingar unnu sannfærandi 4 - 0 sigur eftir að hafa leitt 2 - 0 í hálfleik.

Mörk Keflavíkur gerðu Margeir Vilhjálmsson, Sigurður Björgvinsson, Friðrik Bergmannsson og Gunnar Oddsson. 

Leikskýrsla af ksi.is
Staðan á Íslandsmótinu

Næsti leikur Keflavíkur er gegn Íslandsmeisturunum í Breiðablik. Leikurinn fer fram í Fífunni miðvikudaginn 22. ágúst kl. 19:00.


Lið Keflavíkur í leiknum gegn Létti.
Efri röð frá vinstri:
Ólafur Þór Gylfason, Kristján Geirsson, Sigurður Björgvinsson, Gunnar Oddsson og Margeir Vilhjálmsson
Neðri röð frá vinstri:
Haukur Benediktsson, Jóhann B. Magnússon, Ingvar Georgsson, Rúnar Eyberg Árnason og Friðrik Bergmannsson.


Markaskorararnir gegn Létti.
Gunnar Oddsson, Sigurður Björgvinsson, Margeir Vilhjálmsson og Friðrik Bergmannsson