Fréttir

Sigur hjá stelpunum gegn Víking Ó.
Knattspyrna | 22. mars 2016

Sigur hjá stelpunum gegn Víking Ó.

Stelpurnar í meistaraflokki kvenna spiluðu gegn Víkingsstúlkum frá Ólafsvík í Reykjaneshöll á mánudagskvöldið. Um var að ræða frestaðan leik í Faxaflóamótinu.

Keflavík stjórnaði leiknum frá upphafi til enda og sigruðu mjög sannfærandi 3-0. Fyrsta mark leiksins skoraði Katla María Þórðardóttir á 21 mínútu með glæsilegu langskoti af um 25 metra færi. Í seinni hálfleik skoraði markadrottningin Sveindís Jane Jónsdóttir tvívegis. Fyrra markið kom á 51 mínútu eftir frábært einstaklingsframtak þar sem Sveindís plataði hvern varnarmanninn á fætur öðrum og lagði boltann af öryggi í netið. Seinna markið hjá Sveindís kom eftir fagurt spil Keflavíkurstúlkna og flotta afgreiðslu Sveindísar.

Þrátt fyrir fjölda marktækifæra voru ekki skoruð fleiri mörk. Varnarleikur Keflavíkur var mjög góður í leiknum og ógnuðu Víkings stúlkur t.a.m. Keflavíkurmarkinu aldrei í leiknum.

Keflavík er í 2. sæti í riðlinum og eiga einn leik eftir í Faxaflóamótinu, sá leikur er gegn grönnum okkar úr Grindavík miðvikudaginn 30. mars kl. 19:00 í Reykjaneshöll.

Staðan í riðlinum.

Leikskýrslu frá leiknum má finna hér.