Sigur í fyrsta leik
Keflavík vann stóran sigur á Aftureldingu í fyrsta leiknum undir stjórn Guðjóns Þórðarsona og Kristjáns aðstoðarþjálfara 7-0. Hörður skoraði þrennu í leiknum, Stefán, Magnús Sverrir og Sigþór skoruðu eitt mark hver og eitt var sjálfsmark. Byrjunarliðið var þannig skipað í leiknum: Magnús Þormar, Atli Hólmbergs, Gestur Gylfa, Ásgrímur, Óli Ívar, Hólmar Örn, Stefán, Jónas, Ingvi, Guðmundur Steinars og Hörður. Allir fengu að spreyta sig í leiknum og skipti Guðjón nýju liði inn í hálfleik.
Eðlilega segir þessi leikur lítið um framhaldið utan það að þjálfarinn sér leikmennina spreyta sig gegn andstæðingi úr neðri deild sem býr við aðrar aðstæður en við. Okkar leikmenn eru í mjög þungu og erfiðu æfingatímabili um þessar mundir þar sem leikmenn og þjálfarar hafa ekkert gefið eftir. Næsti æfingaleikur verður á laugardagsmorgun kl. 10:00 gegn sveitungum þjálfarans, Skagamönnum. Svo stuðningsmenn geti gert sér grein fyrir æfingaþunganum þá verður að leik loknum þrekæfing í Perlunni í 45 mínútur og síðan hlaupið 14 x 500 metrar hringin í kringum fótboltavöllinnvöllin. Æfingar á laugardögum hafa verið mjög langar, byrja með 100 mínútum í Reykjaneshöll kl. 10:00, þá er farið í Sundlaugarkjallara, létt hressing, 45 mínútur í Perlunni á fullu og að lokum hlaupið 14 sinnum í kringum fótboltavöllin. Töff keyrsla. Eftir þessar æfingar ætlum við svo að borða saman.
Myndir: Jón Örvar Arason
Hörður í baráttu við leikmann Aftureldingar.
Maggi ver víti í stöðunni 2-0.
Jónas meiddist í fyrri hálfleik og fékk góða meðhöndlun hjá Fal.
Stefán Gísla.
Atli Rúnar lék sinn fyrsta leik með Keflavík.
...og það gerði Ásgrímur líka og Gestur spilaði einnig eftir langa fjarveru.